Breiðholt M Y N D I R   

Einbýlishúsalóð í Breiðholti - hellulögn, grindverk, gróðurbeð, hleðsla og tyrfing.

Hellurnar sem voru notaðar eru frá B.M Vallá. Miðaldasteinn, skógarbrúnn, var lagður óreglulega, ásamt skógarbrúnum vínarsteini og óðalshleðslusteini. Í þessum garði var smíðuð "pergola" (sjá myndir) sem gefur garðinum fallegan svip og möguleika á að bæta við klifurplöntum. 

 


 
Grafarvogur M Y N D I R   

Einbýlishúsalóð í Grafarvogi - hellulögn og kantsteinn.

Í bílaplan voru notaðar 10x30 cm hellur gráar rammaðar inn með jarðbrúnum 10x20 cm hellum. Í göngustíga var notað 30x30 cm hellur. Þrepin voru hlaðin úr óðalskantsteini og meðfram beðum var settur þríkantsteinn.


 
Grafarvogur M Y N D I R   

Einbýlishúsalóð í Grafarvogi - hellulögn, kantsteinn, þrep, sólpallur og grindverk.

Hellurnar í þessari lóð eru forsteinn B, grár og jarðbrúnn en óðalskantsteinn var notaður meðfram beðum ásamt óðalshleðslusteini. Í þrep voru notaðir timburbjálkar 100x100 mm og hvít granítmöl. Við sólpall er grindverk með svokallaðri klaustru ofan á.

 


 
Grafarvogur M Y N D I R   

Einbýlishúsalóð í Grafarvogi - hellulögn, kantsteinn.

Rómarsteinn, grár og svartur, var notaður í þessa hellulögn ásamt óðalskantsteini.


 
Kópavogur M Y N D I R   

Fyrirtæki í Kópavogi - hellulögn.

30x30 moderna-hellur, lagðar í 45° og rammaðar inn með 10x10 tromluðum herragarðssteini, jarðbrúnum.


 
Grindavík M Y N D I R   

Einbýlishúsalóð í Grindavík - hellulögn, kantsteinn, þrep, tjörn og grjóthleðsla.

Forsteinn B, jarðbrúnn og  svartur herragarðssteinn, 10x10, voru notaðir í bílastæði og inngang. Í þrep við inngang var einnig notast við svartan herragarðsstein, 10x10, ásamt svörtum óðalskantsteini. Holtagrjót var notað á skemmtilegan hátt til að ramma inn þrep. Notast var við umferðarkantsteinn á mótum malbiks og hellulagnar.

Í bakgarði var notaður skógarbrúnn vínarsteinn ásamt óðalskantsteini í þrepum og við tjörn.

Þar sem mikill hæðarmunur er í bakgarðinum var stórt hraungrýti notað í hleðslu. 


 

Sólgarðar sími 6920711 - solgardar@solgardar.is

© COPYRIGHT 2002 Brynjar Ágústsson